Þar sem Skautafélagið Jökull er nýtt félag var stjórnarmeðlimum félagsins boðið að mæta á þingið sem áheyrnarfulltrúar.
Félaginu var boðið að vera með kynningu á starfinu, kynna markmið og stefnuskrá. Helsta verkefni félagsins er að sjálfsögðu uppbygging á Samhæfðum Skautadansi (synchro) á Íslandi og mikilvægi þess ásamt því að kynnt var nýjasta viðbót félagsins, Rúlluskautadeild.
Hér sést Kristín Ómarsdóttir, formaður Jökuls kynna starfið sem fékk góðar undirtektir.